ENGLISH

GSP samskipti

GSP samskipti annast víðtæka ráðgjöf á sviði almannatengsla. Stöðumat, stefnumótun, hugmyndavinna og umsjón með útfærslu kynningarstarfs eru þar í veigamiklu hlutverki og eru GSP samskipti þar í samstarfi við valinn hóp sjálfstætt starfandi ráðgjafa, grafíska hönnuði, ljósmyndara, kvikmyndagerðarmenn, vefhönnuði og aðra sérfræðinga eftir því sem verkefnin krefjast.

Í hverju verkefni sem GSP samskipti annast liggur til grundvallar yfir fimmtíu ára reynsla eigandans, Gunnars Steins Pálssonar, af blaðamennsku, auglýsingastofurekstri og almannatengslaráðgjöf.

Gunnar Steinn

Gunnar Steinn Pálsson er fæddur árið 1954. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík en starfaði jafnframt sem ljósmyndari og blaðamaður frá 16 ára aldri. Árið 1979 keypti hann hlut í Auglýsingaþjónustunni sem síðar varð GBB Auglýsingaþjónustan og loks Hvíta húsið. Síðastliðinn aldarfjórðung hefur Gunnar Steinn starfað sjálfstætt og einbeitt sér sérstaklega að almannatengslum og víðtækri ráðgjöf á sviði kynningarmála. Hann tók virkan þátt í starfi Worldwide Partners Inc um tuttugu ára skeið og var meðal annars stjórnarmaður samtakanna til margra ára auk þess að vera formaður Evrópudeildar þeirra og síðar alþjóðlegur formaður samtakanna.

Hafa samband

Netfang: gsp@gsp.is
Farsími: 893 2836

GSP samskipti - Skipholti 50d - 105 Reykjavík - Sími: 520 9100 - gsp@gsp.is